sudurnes.net
Youtube-stjarna úr Grindavík ofarlega á skattalistanum - Local Sudurnes
Grindvíkingurinn Þórlaug Guðmundsdóttir er í 12. sæti yfir þá sem greiða hæstu opinber gjöld á liðnu ári, Þórlaug greiðir 101 milljón í gjöld. Þórlaug er efst kvenna sem komast á efsta hluta skattalistans að þessu sinni, en á meðal þekktra kvenna á listanum er Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu, en Þórlaug er hvað þekktust fyrir myndband sem vakti mikla athygli í maí síðastlinum, en ábúendur á Hópi í Grindavík gáfu sér tíma til að setja saman flott en umdeilt myndband í miðjum sauðburði. Myndbandið sem er að finna hér fyrir neðan hefur verið skoðað tæplega 40.000 sinnum á vefsíðunni vinsælu. Meira frá SuðurnesjumFleiri á framfærslustyrkjum frá ReykjanesbæFrábær leikur Jóns Axels tryggði Grindavík mikilvæg stig – Njarðvík fór létt með FSuAnita Lind með U-17 ára landsliðinu til SerbíuSex framlengja við KeflavíkMethagnaður hjá leigurisa – Undirbúa skráningu á markaðStórt tap hjá Keflavík í fyrsta leik Sverris ÞórsÁstrós og Kristófer Íþróttamenn Keflavíkur 2015Sigurður hættir með KeflavíkHeiðarskóli í úrslit SkólahreystiBlása til sóknar í Reykjanesbæ