sudurnes.net
Ýmis vandamál fylgja rafmagnsleysi - Notendur hvattir til að hafa samband - Local Sudurnes
Eins og flestir íbúar Suðurnesja tóku eftir fór rafmagn af öllum Suðurnesjum klukkan rúmlega þrjú, með þeim afleiðingum að heimili og fyrirtæki urðu rafmagnslaus. Þá stöðvaðist heitavatnsframleiðsla í Svartsengi og því varð heitavatnslaust hjá notendum. Einnig hafði rafmagnsleysi mikil áhrif á þrýsting vatnsveitunnar, segir í tilkynningu frá HS Veitum Vinnuflokkar Landsnets og HS Veitna hófu strax bilanaleit og fljótlega kom í ljós hvað olli bilun. Viðgerð gekk vel og voru allir notendur komnir með rafmagn klukkan 18:15. Fljótlega eftir að rafmagn kom á gat HS Orka hafið heitavatns framleiðslu í Svartsengi á ný og í framhaldi af því gátu HS Veitur farið í að byggja upp þrýsting á dreifikerfinu, en langan tíma getur tekið að ná eðlilegum hita og þrýstingi hjá notendum á ný. Eftir svona stóra bilun geta komið upp ýmis vandamál hjá notendum. Viðskiptavinum er bent á að hafa samband við þjónustuver HS Veitna með því að senda tölvupóst á netfangið hsveitur@hsveitur.is, í gegnum netspjallið á heimasíðunni eða í síma 422 5200, segir í tilkynningunni. Meira frá SuðurnesjumMáttu ekki fjarlægja númeralausa bifreið af einkalóðVerð á rútuferðum frá flugstöðinni hefur hríðlækkað – Ódýrast að taka strætóÍbúafundur um skipulagsmál í Reykjanesbæ á laugardagÍbúar í Höfnum og á Ásbrú verða án [...]