Nýjast á Local Suðurnes

Yfirhershöfðingi NATO skoðaði öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli

Denis Mercier, yfirhershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, Supreme Allied Commander Transformation (SACT), kom hingað til lands í opinbera heimsókn í nýliðinni viku.

Á föstudag tóku fulltrúar Landhelgisgæslu Íslands ásamt fulltrúum utanríkisráðuneytisins á móti Mercier yfirhershöfðingja á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar var honum kynnt framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna hér á landi en Landhelgisgæslan annast framkvæmdina í umboði utanríkisráðherra.

Á meðal þeirra atriða sem farið var yfir voru loftrýmiseftirlit, loftrýmisgæsla, gistiríkjastuðningur og framkvæmdir á öryggissvæðunum.