Nýjast á Local Suðurnes

Yfir milljón farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í júlí

Aldrei hafa fleiri farþegar farið um Keflavíkurflugvöll eins og í nýliðnum júlímánuði. Samkvæmt frétt Túrista fóru um 1,1 milljón farþega um flugvöllinn í mánuðinum. Jókst fjöldi farþega um 22% frá sama mánuði í fyrra þegar farþegarnir voru rúmlega 900.000.

Þrátt fyrir þessa miklu aukningu þá var biðtími í öryggisleit stuttur. Af þeim farþegum sem fóru í gegn um öryggisleit á Keflavíkurflugvelli í júlí biðu 92% í röð í fimm mínútur eða skemur og nánast allir farþegar, eða um 99% biðu í minna en 10 mínútur.