sudurnes.net
Yfir meðaltali í flestum þáttum í árlegri þjónustukönnun - Local Sudurnes
Í lok árs tók Suðurnesjabær í fyrsta skipti þátt í árlegri þjónustukönnun sem Gallup gerir á meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins á meðal einstaklinga 18 ára og eldri. Könnunin var gerð í lok árs 2019 og í byrjun árs 2020. Suðurnesjabær er að koma vel út í þessari fyrstu könnun sinni, segir á vef sveitarfélagsins. Suðurnesjabær raðar sér þannig með fremstu sveitarfélögunum og er í meðaltali eða yfir meðaltali í flestum þáttum sem mældir eru. Þá raðast Suðurnesjabær númer tvö í könnuninni þar sem ánægja með þjónustu grunnskóla er mæld og einnig þegar spurt er hvernig starfsfólk bæjarins/sveitarfélagsins leysir úr erindi eða erindum fólks. Suðurnesjabær raðast númer þrjú með 4.3 stig af 5, þar sem spurt er um hversu ánægt eða óánægt fólk er með sveitarfélagið sem stað til að búa á. Niðurstöður könnunarinnar eru áhugaverðar og munu nýtast til að bæta þjónustu í Suðurnesjabæ enn frekar. Meira frá SuðurnesjumMikilvægt að þjónustuveitendur séu vakandi og bregðist skjótt við breyttum aðstæðumSkoða hvernig bæta megi hraða og skilvirkni þjónustu GrindavíkurbæjarTvö fyrirtæki buðu í endurnýjun sjóvarnargarðaFjölsmiðjan stækkar Kompuna – Bjóða upp á meira úrval af stærri hlutumÁnægjustig íbúa Reykjanesbæjar hækkar á milli áraFélag í jafnri eigu athafnamanns og framkvæmdastjóra Kadeco sýslar með eignir á [...]