Nýjast á Local Suðurnes

Yfir 130 kvartanir vegna USi – Frá sömu aðilum mismunandi daga

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Yfir 130 kvartanir hafa borist Umhverfisstofnun vegna lyktarmengunar frá verksmiðju United Silicon í Helguvík, frá því ljósbogaofn verksmiðjunnar var gangsettur á ný fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Flestar kvartanir berast frá Heiðarhverfi.

Nokkuð er um að sömu aðilar sendi inn kvartanir, á mismunandi dögum, samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun, en þær tölur sem birst hafa í fjölmiðlum eru heildarfjöldi kvartana, en ekki er um að ræða heildarfjölda einstaklinga sem lagt hafa inn kvörtun.

Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni hafa íbúar í Heiðrhverfi og gamla bænum í Keflavík sent inn kvartanir hvað oftast, auk þess sem nokkuð hefur verið um að kvartað sé undan lykt í hesthúsahverfinu á Mánagrund.

Heimildir Suðurnes.net herma að ljósbogaofn verksmiðjunnar sé við það að ná kjörhita og við þær aðstæður ætti lyktarmengun að vera úr sögunni.