WOW-air býður frítt flug fyrir breska ríkisborgara sem vilja flytja til Íslands
Breski miðillinn Daily Star greinir frá því á vefsíðu sinni að WOW air bjóði fólki sem eru með breskt ríkisfang og fljúga með WOW air til Íslands til að flytjast búferlum hingað til lands frítt flug. Þar segir að þeir Bretar sem flytji til Íslands frá deginum í dag og til 1. október og sanni það til dæmis með leigusamningi, staðfestingu á skólavist eða ráðningasamningi, fái flugferðina, ef ferðast var með WOW air, endurgreidda.
Í grein Daily Star er bæði bent á lága glæpa- og morðtíðni hér á landi og að Ísland hafi jafnframt verið valið eitt friðsælasta land heims síðustu sex árin – Mbl.is greindi frá þessu á vef sínum
Bretar sem vilja notfæra sér fyrirkomulagið geta sent staðfestingu á búsetu á Íslandi á netfangið movingtoiceland@wow.is. Þurfa þeir að ætla að búa á Íslandi í að minnsta kosti ár til að fá ferðina endurgreidda.