Nýjast á Local Suðurnes

Wizz Air með beint flug milli Keflavíkur og Kraká

Ungverska flugfélagið Wizz Air hóf í gær beint flug milli Keflavíkurflugvallar og Kraká í Póllandi. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum. Wizz Air er stærsta lággjaldaflugfélag í Mið- og Austur-Evrópu. Kraká er tíundi áfangastaður Wizz Air frá Keflavíkurflugvelli nú í vetur.

Farþegar með fyrsta flugi félagsins frá Keflavíkurflugvelli til Kraká nutu veitinga í boði Isavia. Boðið var upp á tertu, kaffi og gosdrykki í tilefni ferðarinnar. Einnig sprautuðu slökkvibílar heiðurs vatnsboga yfir vélina þegar hún koma að flugstöðinni.