Vonskuveður í vændum – Allt að tólf stiga frost þegar líður á vikuna
Það mun kólna svo um munar eftir því sem líða fer á vikuna samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Á miðvikudag er til að mynda gert ráð fyrir að frost nái allt að 12 á höfuðborgarsvæðinu.
Slydda eða rigning verðir á landinu sunnantil síðdegis og með kvöldinu er gert ráð fyrir suðvestanátt, 8-13 metrum á sekúndu, með skúrum eða éljum um landið suðvestanvert, en annars norðaustan- og austanátt, 13-20 metrum á sekúndu og snjókomu.