sudurnes.net
Vökvatengi skiptir um eigendur - Local Sudurnes
Rubix Ísland ehf. hefur gengið frá kaupum á verslun og eignum Vökvatengi ehf. í Reykjanesbæ. Vökvatengi hefur sérhæft sig sem sölu- og þjónustuaðili á vökva- og loftbúnaði, ásamt margskonar rekstrarvörum fyrir fyrirtæki á Reykjanesinu. Vökvatengi var stofnað árið 1985 og er staðsett í Reykjanesbæ. Stofnendur fyrirtækisins, Skúli S. Ásgeirsson og Elín Halldóra Hermannsdóttir, munu reka verkstæði, sem staðsett er í sama húsnæði áfram. Í tilkynningu segir að Rubix Ísland muni njóta góðs af stækkun markaðssvæðis og sérfræðiþekkingu starfsmanna Vökvatengis. Þegar líður á haustið mun verslun Vökvatengis breytast og vöruframboðið aukast með vörum frá Rubix og Verkfærasölunni. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkIcelandair mun kaupa 45 þúsund tonn af HelguvíkureldsneytiHS Veitur hagnast um 780 milljónir króna – Greiða hálfan milljarð í arðBúast við milljón gestum á næsta ári í Bláa lónið – Lokað í tvær vikur í janúarOpna matvöruverslun í VogumThorsil fær frest á greiðslu gatnagerðargjalda vegna tafa á deiliskipulagiFlugstöðin verður stærsti vinnustaður landsins – Erlendu starfsfólki fjölgarSamfélagið nýtur góðs af starfsemi KísilveraJónas Guðni sér um styrktar- og samningsmál KeflavíkurSkilja ákvörðun Síldarvinnslunnar um að hætta starfsemi