sudurnes.net
Vogar bjóða íbúum upp á ókeypis skyndihjálparnámskeið - Local Sudurnes
Sveitarfélagið Vogar hefur í samvinnu við Rauða krossinn ákveðið að efna til námskeiðs í skyndihjálp fyrir íbúa sveitarfélagsins. Námskeiðin sem eru íbúum sveitarfélagsins að kostnaðarlausu standa yfir í tvær klukkustundir og fara fram í Álfagerði. Í boði eru þrjár dagsetningar, miðvikudagur 23. mars, miðvikudagur 30. mars og fimmtudagur 31. mars. Námskeiðin hefjast kl. 19:30 alla dagana. Áhugasamir eru hvattir til að skrá þátttöku á facebooksíðu sveitarfélagsins, þar sem námskeiðin er að finna undir „viðburðir“, með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is eða með því að hringja á bæjarskrifstofurnar í síma 440 6200, milli kl. 08:30 og 15:00 virka daga. Meira frá SuðurnesjumBlöðrur eða ekki blöðrur? – Þér er boðið á fund um framkvæmd LjósanæturFrítt í sund og vöfflusala í VatnaveröldÍbúafundir um kosti og galla sameiningar Garðs og SandgerðisGætu þurft að greiða allt að hálfri milljón á dag fyrir stæði við flugstöðinaErlingur sýnir margvísleg verk í Tjarnarsal Ráðhúss ReykjavíkurVilja lækkun hámarkshraða og hraðahindranirSögufélag Suðurnesja heldur fræðslufund um sýninguna VerbúðarlífBjóða veglegan afslátt í leiktæki á LjósanóttÍbúafundur í Hljómahöll um aðalskipulag ReykjanesbæjarMenningarvika Grindavíkur hefst á laugardag – Fjölbreytt dagskrá