sudurnes.net
Vindverkir og hárkollur - Funheitur FöstudagsÁrni - Local Sudurnes
Smá kauðalegt að mynd af fyrirsætunni og þyrluflugmanninum Ásdísi Rán sé notuð til að selja hárkollur á aliexpress. Um er víst að ræða hágæða kollur fyrir alvöru dragdrottningar frá Brasilíu og eru á verði frá 98 dollara. Ásdís Rán er glæsileg á myndinni, en áður en maður veit af er maður farinn að spá í hverjum lokk og farinn að halda að ísdrottningin sé bara með kollu á myndinni. Hefði samt ekki verið nær að nota frekar mynd af indversku prinsessunni okkar, Leoncie sem fer ekki út úr húsi nema með kolluna vel greidda. Öll þurfum við að leysa vind og þekkjum öll aðstæður þar sem við erum í miklum vandræðum þar sem ekki er hægt að sleppa bombunni út án þess að verða sér til skammar. Meltingarfræðingurinn Lisa Ganjhu greindi á dögunum frá því að gosdrykkja og sérstaklega ef það er drukkið með röri veldur miklum vindgangi. Gervisykur og mjólkurvörur hafa líka áhrif á þrýstinginn þarna að aftan, en það sem kom mér á óvart er að brokkolí, kál og rósakál er á listanum líka. Þetta grænmeti á líkaminn í vanda með að melta og því veldur það vindgangi og veseni. Niðurstaðan hjá Lisu er að við þurfum að [...]