Nýjast á Local Suðurnes

Vindasamt á þrettándanum

Veður­stofa Íslands spá­ir stormi með meðal­vindi yfir 20 metra á sek­úndu syðst á land­inu á morg­un, á Suðurnesjum má gera ráð fyrir 14-16 metrum á sekúndu samkvæmt spákortum Veðurstofunnar. Hvessa fer í nótt og fyrra­málið og verður aust­an 13-23 metr­ar á sek­úndu um há­degi á morg­un, hvass­ast syðst. Með kvöld­inu hlán­ar með rign­ingu um landið sunn­an- og aust­an­vert á morg­un.

Á fimmtudag spáir Veðurstofan svo rigningu með S-ströndinni, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast á SV-landi.