Nýjast á Local Suðurnes

Vill meira fjármagn til Suðurnesja: “Reiknilíkön sem ráðuneyti notast við ganga ekki upp”

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar - Mynd: Skjáskot RÚV

Helst þarf að auka fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og löggæslustofnana á Suðurnesjum. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að ekki gangi upp að ríkið miði við 1 prósents íbúafjölgun. Síðustu ár hafi fjölgunin í Reykjanesbæ verið um 8 prósent á hverju ári.

„Þegar íbúafjölgunin er eins og hjá okkur, 8 prósent ár eftir ár, þá fer það ekki saman við þessa meðaltalstölu sem reiknilíkön sem ríkisstofnanir og ráðuneytin notast við, sem er upp á 1 prósent fjölgun. Það bara gengur ekki. Þannig að við finnum fyrir því núna að það vantar verulega upp á að ríkisstofnanir fái þær fjárveitingar sem þær þurfa til að geta tekist á við þessa miklu íbúafjölgun svo að ekki sé talað um þá staðreynd að stór hluti af íbúum svæðisins er af erlendu bergi með öllum þeim áskorunum sem því fylgja,“ segir bæjarstjórinn í viðtali við morgunútvarp Rásar 2.

Kjartan segir einnig að þrátt fyrir að reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafi verið breytt þannig að tekið er tillit til svæða þar sem íbúafjölgun er mikil sé það mjög jákvætt en gera þurfi betur þegar komi að framlögum til ríkisstofnana.