sudurnes.net
Vilja útsýnispall á Hafnahöfn - Local Sudurnes
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir umsókn frá Reykjaneshöfn í uppbyggingarsjóð ferðamannastaða til byggingar á útsýnispalli á Hafnahöfn á síðasta fundi atvinnu- og hafnaráðs. Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju með að viðkomandi umsókn sé farin í ferli enda er hún í samræmi við þá framtíðarsýn sem samþykkt var fyrir Reykjaneshöfn árið 2021 og náði til ársins 2023, en þar segir m.a. um Hafnahöfn: „Á bryggjuendanum er útsýnispallur þar sem hægt er að horfa til beggja átta meðfram ströndinni og út á haf.“ segir í fundargerð. Meira frá SuðurnesjumMeistaranemar sýna í Listasafni ReykjanesbæjarHeimsmeistari unglinga með skáknámskeið í VogumÁramótabrenna á StröndinniMenningarminjadagurinn – Ókeypis í KvikunaGestir hvattir til að nota strætó – Svona verður leiðarkerfið!Sýna Formheim Bjargar ÞorsteinsdótturÍslensk abstraktmyndlist við upphaf 21. aldar í Listasafni ReykjanesbæjarSögusýning í tilefni 50 ára afmælis MánaSýningin Kvennaveldið: Konur og kynvitund opnuð á föstudagGóð tilboð, jólaglögg og fish´n´chips á Fjörugum föstudegi