Nýjast á Local Suðurnes

Vilja tvöfalda laxeldið í Vogum

Stofnfiskur hf. hefur lagt inn umsókn til Umhverfisstofnunar varðandi stækkun á laxeldi fyrirtækisins í Vogum.

Umsóknin snýr að landeldi á laxi í Vogavík í Vogum. Stofnfiskur hf. sæki um starfleyfi fyrir stækkun á laxeldi úr 200 tonn/ári í 400 tonn/ ári af laxi. Fyrirtækið hefur fyrir tvö starfsleyfi á svæðinu sem falla yfir tveggja eininga eldi sem staðsett eru á efra svæði og neðra svæði.

Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að unnið sé úr umsókn fyrirtækisins og að gerð starfsleyfistillögu.  Sú tillaga  verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.