sudurnes.net
Vilja tengja strætókerfið við Leifsstöð án tafar - Local Sudurnes
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vilja að starfsfólki í flugstöð Leifs Eiríkssonar verði gert auðveldara að sækja vinnu með tafarlausri tengingu strætókerfis við flugstöðina. Í bókun, sem sjá má hér fyrir neðan, segir að til standi að framkvæma umrædda tengingu, en þó ekki fyrr en núverandi samningur við rekstraraðila verður endurskoðaður. “Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að breytingum á almenningssamgöngum til og frá Leifsstöð verði flýtt þannig að starfsfólk eigi auðveldara með að sækja vinnu sína. Í viðtali í fréttum við sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs kom fram að ekki yrði ráðist í neinar breytingar fyrr en við endurskoðun samnings sem er eftir of langan tíma. Þessi tímarammi er að okkar mati óásættanlegur og leggjum við til að ráðist verði í endurskoðun á tengingu strætókerfisins við Leifsstöð án tafar.“ Meira frá SuðurnesjumKaffitár í neðsta sæti í forvali um veitingasölu í FLE – Hafa ekki afhent öll gögnSmituðum fjölgar lítillega á Suðurnesjum – Forgangsraðað í sýnatökurReka stærstu rafmyntanámu heims á Fitjum – Sjáðu vinnsluna í beinni!Sigurbergur Elísson í viðtali á X-inu: Hefur gefið mér heilmikiðFimm milljarða plús hjá Reykjanesbæ á síðasta áriSlæmar aðstæður farandverkafólks – “Græða á því að leigja þurfandi fólki ónýtt húsnæði”Bílstjóri Bus4u forðaði stórslysi – “Við erum óhult og það [...]