Nýjast á Local Suðurnes

Vilja stækka leikskóla og kanna kosti þess að setja á stofn ungbarnadeildir

Fræðsluráð Reykjanesbæjar vill að fjármagn verði tryggt til stækkunar Hjallatúns auk eins leikskóla í Keflavíkurhverfinu, sem fræðslusvið gerir tillögu um, fyrir fjárhagsáætlunargerð ársins 2021. Einnig er lagt til að leikskólinn Völlur á Ásbrú nýti allt sitt húsnæði og að fjármagn verði tryggt í endurbætur á húsnæðinu ef þörf er á.

Í tengslum við minnisblað hagdeildar Reykjanesbæjar um ungbarnaleikskóla í Reykjanesbæ felur fræðsluráð leikskólafulltrúa að undirbúa erindisbréf fyrir faghóp sem hefur það að markmiði að greina ítarlega kosti og galla annars vegar ungbarnaleikskóla og hins vegar að setja á stofn ungbarnadeildir í núverandi leikskólum. Erindisbréfið skal lagt fyrir næsta fund fræðsluráðs.