Vilja leggja hjólastíg á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar
Fjórtán þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi þess efnis að skipaður verði starfshópur um gerð hjólaleiðar milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Í tillögunni kemur fram að á milli þeirra Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar séu engar náttúrulegar hindranir og að leiðin sé á láglendi og því séu allar forsendur fyrir góðri hjólreiðatengingu milli svæðanna.
Lagt er til að farið verði eftir gamla Keflavíkurveginum og Vatnsleysustrandarvegi. Malbik verði lagt á þá hluta leiðarinnar sem í dag séu malarvegir, nýir stígar lagðir á þar sem það sé nauðsynlegt og leiðin verði merkt með vegvísum og -merkingum. Ekki er talið hentugt að fara meðfram Reykjanesbraut meðal annars vegna umferðarþunga og umferðarhraða um hana.
Þessi útgáfa myndi kosta rúmar 327 milljónir króna miðað við verðlag ársins 2014. Fyrsti flutningsmaður er Pawel Bartoszek, varaþingmaður Viðreisnar en meðflutningsmenn koma úr öllum flokkum utan Framsóknarflokks, en á meðal þeirra sem flytja tillöguna ásamt Pawel eru Suðurnesjaþingmennirnir Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson og Oddný G. Harðardóttir.