sudurnes.net
Vilja aukna vetrarþjónustu á Suðurstrandarvegi - Lokanir hafa neikvæð áhrif - Local Sudurnes
Bæjarstjóra Grindavíkur hefur verið falið að fylgja eftir ályktun bæjarráða Grindavíkur og Árborgar, þar sem farið er fram á að Vegamálastjóri breyti skilgreiningu á vetrarþjónustu fyrir Suðurstrandarveg á þann hátt að þjónusta á veginum verði færð upp um þjónustuflokk. Miðað við umferð ætti Suðurstrandarvegur að vera í þjónustuflokki 3 og vera með vetrarþjónustu 5 daga vikunnar, en nú fellur Suðurstrandarvegur í þjónustuflokk 4, líkt og vegir þar sem meðalumferð nemur innan við 100 bílum VDU (vetrardagsumferð) og fær vetrarþjónustu 1-2 daga í viku. Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar mældist umferð um Suðurstrandarveg árið 2014 172 VDU við Festarfjall og 142 VDU við Selvog og hefði því þátt að breyta þjónustu við veginn eigi síðar en síðasta haust. Bæjarráð sveitarfélaganna tveggja telja að vegna tíðra lokana Suðurlandsvegar á Hellisheiði og í Þrengslum sé mjög brýnt að hafa möguleika á að beina umferð um Suðurstrandarveg. Þá telja sveitarfélögin að lokanir á Suðurlandsvegi hafi mikil og neikvæð áhrif á íbúa og fyrirtæki á svæðinu og nauðsynlegt að hafa aðra leið færa á milli Suðurlands og Suðurnesja. Meira frá SuðurnesjumKosið um sameiningu Sandgerðis og Garðs í nóvember – Kynningarefni aðgengilegt á netinuGrunsamlegar mannaferðir tilkynntar til lögregluKennsla með hefðbundnum hætti í AkurskólaVilja hraða byggingu raðhúss – Samstarfsverkefni [...]