Nýjast á Local Suðurnes

Vilja að gerðir verði göngustígar á milli allra byggðakjarna á Suðurnesjum

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum vill að sveitarfélögin, Vegagerðin og Isavia vinni saman að því að auka möguleika fólks til að ferðast fótgangandi og á hjólum á Suðurnesjum. Sambandið vill að áhersla verði lögð á uppbyggingu stígakerfis bæði á milli byggðakjarna og að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Þetta er á meðal þess sem kom fram á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem haldinn var dagana 13. og 14. september. Þá kom fram að öll sveitarfélögin á Suðurnesjum séu sammála um að leggja áherslu á eftirfarandi verkefni:

  • Ljúka þarf tvöföldun Reykjanesbrautar og huga að öryggi vegtenginga að nærliggjandi bæjarfélögum.
  • Nauðsynlegt er að ráðast í löngu tímabærar viðhaldsframkvæmdir á þjóðvegunum að Suðurnesjabæ auk þess sem breikka þarf veginn á milli bæjarkjarnanna.
  • Sveitarfélögin, Vegagerðin og Isavia vinni saman að því að auka möguleika fólks til að ferðast fótgangandi og á hjólum á Suðurnesjum með uppbyggingu stígakerfis bæði á milli byggðakjarna og að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
  • Tryggja þarf að stuðningur ríkisins til uppbyggingar hafna sé í samræmi við samþykkt Svæðisskipulags Suðurnesja þannig að hægt sé að halda áfram uppbyggingu stórskipahafnar í Helguvík og tryggja stöðu Grindavíkurhafnar og Sandgerðishafnar sem fiskihafna.
  • Auka þarf framlög til vetrarþjónustu á þjóðvegum á Suðurnesjum þannig að hún sé í samræmi við verklagsreglur Vegagerðarinnar um aukna umferð.
  • Fundurinn leggur áherslu á að stjórnvöld tryggi áframhaldandi uppbyggingu Keflavíkurflugvallar og gæti þess að fjármögnun rekstrar og uppbyggingu annarra flugvalla sé ekki tekin úr tekjugrunni Keflavíkurflugvallar.
  • Fundurinn fordæmir að ekki sé haft samráð við sveitarfélögin á Suðurnesjum um framtíðar áform flugsamgangna á SV-horninu. Það er mikilvægt að samfélagslegir hagsmunir séu skoðaðir og metnir frá öllum hliðum áður en ákvörðun um framtíðar miðju innanlandsflugs er ákveðin.