Viðvörunarstig vegna veðurs hækkað - Local Sudurnes
Appelsínugult viðvörunarstig gildir nú fyrir alla landshluta á einhverjum tímapunkti fram á aðfaranótt fimmtudags vegna norðan stórhríðar og storms sem vænt er að gangi yfir landið. Áður hafði verið gefin út gul viðvörun, en Veðurstofan hefur hækkað viðvörunarstigið á öllu landinu nema á Austurlandi og Suðausturlandi. Samkvæmt viðvörunum á vefsíðu Veðurstofunnar má búast við ofsaveðri, 20-28 m/s á höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóa og geta íbúar búist við samgönguturflunum og lokunum á vegum. Hætta er talin á foktjóni og sérstaklega tekið fram að ekkert ferðaveður sé meðan veðrið gangi yfir. Búist er við að veðrið nái á Reykjanesið um klukkan fjögur síðdegis og nær viðvörunin þannig til Faxaflóasvæðisins, höfuðborgarsvæðisins, Reykjaness og Suðurlands líka. Stendur viðvörunin yfir til miðvikudagsmorguns og á Norðurlandi eystra fram á seinni part miðvikudags. Viðvaranir fyrir næstu sólarhringa má í heild sjá hér að neðan og á vefsíðu Veðurstofunnar. Höfuðborgarsvæðið Norðan stormur eða rok (Appelsínugult ástand) 10 des. kl. 16:00 – 11 des. kl. 07:00 Gengur í norðan storm eða rok, 20-28 m/s. Hvassast vestantil í borginni, á Kjalarnesi og Mosfellsbæ. Samgöngutruflanir eru líklegar á meðan veðrið gengur yfir og truflanir á flugsamgöngum. Hætt er við foktjóni og eru byggingaraðilar hvattir til að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Búast má við hækkandi [...]