Nýjast á Local Suðurnes

Viðbúnaður vegna reyks um borð í flugvél

Flugvél bandaríska flugfélagsins Delta sem var á leiðinni frá Minneapolis til Amsterdam var beint til Keflavíkurflugvallar eftir að reyks varð vart í farþegarými.

Töluverður  viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli vegna þessa og voru Brunavarnir Suðurnesja (BS) og björgunarsveitir í viðbragðsstöðu.  BS sendu slökkviliðsbíla á Keflavíkurflugvöll í samræmi við viðbragðsáætlanir.

Vélin lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan rúmlega átta samkvæmt vef RÚV og er unnið að því að koma farþegum frá borði.