sudurnes.net
Vetrarveður í kortunum - Snjóar þegar líður á vikuna - Local Sudurnes
Það má búast við vetrarveðri sunnanlands, þegar líður á vikuna og mun hiti verða nálægt frostmarki. Því má búast við slyddu eða snjókmu á miðvikudag og fimmtudag. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Ísands, en hér fyrir neðan má sjá spá verðurfræðinga út vikuna. Athyglisvert: Þetta kemur sér vel um vetur Veðurspá næstu daga: Vestan 8-15 metrar í dag, en hægari vindur norðanlands. Víða él og hiti nálægt frostmarki, en skúrir við sjávarsíðuna á sunnanverðu landinu með hita að 5 stigum. Lægir víða í kvöld. Austan og norðaustan 10-18 metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma á morgun sunnan- og síðar austanlands. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Austan og norðaustan 13-18 metrar á sekúndu sunnan- og austanlands og snjókoma, slydda eða rigning. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag og fimmtudag: Austan- og suðaustanátt, yfirleitt á bilinu 8-15 metrar á sekúndu. Él eða snjókoma í flestum landshlutum og frost 0 til 5 stig. Á föstudag: Vaxandi suðaustan- og austanátt með úrkomu og hægt hlýnandi veðri. Víða hvassviðri og snjókoma undir kvöld, en rigning sunnanlands og frostlaust þar. Á laugardag: Hvöss austanátt á [...]