sudurnes.net
Milljarða verkefni vegna komu bandaríska hersins hefjast í haust - Local Sudurnes
Nýtt fjárhagsár Bandaríska ríkisins hefst 1. október næstkomandi og má gera ráð fyrir að verkefni á vegum bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli hefjist því formlega eftir þann dag. Þetta kemur fram í svari Utanríkisráðuneytsins við fyrirspurn Suðurnes.net. Varn­ar­málaráðuneyti Banda­ríkj­anna gerir ráð fyrir að kostnaður við breytingar á flugskýlum á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 flugvéla til landsins, muni nema tæplega þremur milljörðum króna. Þar af er gert er ráð fyr­ir að um 650 millj­ón­ir króna fari í að koma upp nauðsyn­legri hreinsiaðstöðu og um 200 millj­ónir í skipu­lags- og hönn­un­ar­vinnu. Þá kemur fram í svari ráðuneytisins að viðræður á milli aðila séu í undirbúningi og verða þá lagðar línur að verkáætlun og fyrirkomulag varðandi framkvæmdina. Bandaríski herinn hefur sem kunnugt er tekið þátt í loftrýmisgæslu við landið á vegum NATO og hafa allt að 200 hermenn dvalið hér á landi til skemmri tíma á meðan á þeim aðgerðum hefur staðið. Meira frá SuðurnesjumDráttur á milljarðaframkvæmdum Bandaríkjahers á KeflavíkurflugvelliNorðurheimskautadeild bandaríska sjóhersins mun hafa aðsetur í KeflavíkUndir 50 í sóttkví á SuðurnesjumÞjónusta skerðist og sameininga leitað við önnur sveitarfélög verði skipuð fjárhaldsstjórnÍtalir mæta í loftrýmisgæsluFlugherinn kannar möguleika á byggingu vöruhúsaBandarískur ráðherra: “Átt­um okk­ur á land­fræðilegu mik­il­vægi Íslands”Fyrrum Nylon-söngkona opnar söngskóla á Suðurnesjum – Myndband!Hækka aldurstakmark og bjóða upp á vinsælar ballhljómsveitirRekstur loftvarnakerfisins [...]