sudurnes.net
Verðum við hamingjusamari ef við kaupum okkur eitthvað? - Local Sudurnes
Tilhugsunin um að kaupa eitthvað spennandi, eitthvað sem við verðum að eignast leiðir oft til þess að skynsemi okkar hverfur úr huga okkar. Það er eins og við séum búin að aðkveða okkur og ekkert fær haggað ákvörðun okkar. Er það af því að við vitum að við verðum hamingjusamari? Haukur Hilmarsson, fjármálaráðgjafi Rannsóknir sýna að flestir upplifa aukna vellíðan við að kaupa hluti en að sú vellíðan verði skammvinn. Þeir sem kaupa sér lífsreynslu eins og að fara út að borða, læra á hljóðfæri upplifa lengur vellíðan en þeir sem kaupa hluti á borð við farsíma eða föt. En rannsóknir sýna einnig að þriðjungur þeirra sem eru óhamingjusöm áður en þau kaupa bæði hluti eða lífsreynslu eru áfram óhamingjusöm eftir kaupin. Skýringuna má líklegast finna í að margt sem við veljum að kaupa á í raun ekki við okkur. Margt gæti átt vel við en aðeins með þeim tilgangi að tilheyra einhverjum straumum og stefnum meðal vina eða í samfélaginu. Við kaupum eitthvað sem er vinsælt þótt að við höfum í raun ekkert gaman af því. Einhverjir gætu kannast við að fá sama áhugamál og aðrir en það dagar svo uppi og áhuginn hverfur. Lausn við þessu gæti verið [...]