sudurnes.net
Verðmætum stolið úr húsbíl - Local Sudurnes
Brotist var inn í húsbíl sem stóð á malarstæði við Arnarfell, nærri Krýsuvík, í vikunni. Úr honum var stolið dýrum lausamunum, en sá eða þeir sem voru þarna að verki höfðu brotið rúðu til að komast inn í bifreiðina. Tveir erlendir ferðamenn voru með bifreiðina á leigu og tjáðu þeir lögreglunni á Suðurnesjum að þeir hefðu brugðið sér frá í göngu en þeim mætt heldur óskemmtileg sjón þegar þeir komu til baka. Meðal þess sem stolið var voru persónuskilríki, Dell fartölva, Nikon myndavél og linsur. Lögregla rannsakar málið. Meira frá SuðurnesjumDýrum tækjum stolið í innbrotiEkið á konu inni í bílaþvottastöðVerkfærum og dýrum reiðhjólum stoliðMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnRándýrum myndavélabúnaði stolið af erlendum ferðamanniStálu vespu og létu greipar sópa í töskugeymsluAðstoðuðu tvo í sjálfsvígshugleiðingumVopnaleit tók um fimm klukkustundir – Isavia þakkar þjónustuaðilum á flugvellinumDýrum munum stolið á meðan húsráðandi svafFjordvik flutt til niðurrifs í Belgíu