Nýjast á Local Suðurnes

Verðlaun veitt fyrir best skreytta húsið og götuna

Fín þátttaka var í skemmtilegum jólaleik á vefsíðunni Betri Reykjanesbær nú á aðventunni þegar íbúar gátu tilnefnt og greitt atkvæði þeim húsum og götum sem þeim þóttu hvað best skreytt. Í Aðventugarðinum á Þorláksmessu kl. 20 verða veittar viðurkenningar fyrir það hús og þá götu sem urðu hlutskörpust í leiknum.


Það er gaman að segja frá því að í þeirri götu sem þykir best skreytt er einnig að finna best skreytta húsið en þetta eru Freyjuvellir og Freyjuvellir 3. Það má búast við enn flottari jólaskreytingum frá þeim á næsta ári þar sem þau hljóta að launum gjafabréf úr Húsasmiðjunni, kr. 40.000 fyrir best skreytta húsið og kr. 70.000 fyrir best skreyttu götuna, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ..


Það er Súlan verkefnastofa sem setti leikinn á laggirnar og var hann fyrst og fremst hugsaður til skemmtunar og til þess að vekja athygli á því sem vel er gert hjá íbúum Reykjanesbæjar. Nú er um að gera að kíkja á niðurstöður kosningarinnar á vefsíðunni Betri Reykjanesbær og bjóða fjölskyldunni á rúntinn til að skoða fallega skreytt hús og götur bæjarins.