Veittu hópferðabifreið eftirför á Reykjanesbraut
Lögreglumenn mældu hópferðabifreið aka á 116 km hraða á Reykjanesbraut á þriðja tímanum í nótt, en þar er hámarkshraði 90 km á klst. Ökumaðurinn stoppaði ekki þrátt fyrir að lögreglan gæfi merki og var honum því veitt eftirför þar til hann stöðvaði aksturinn.
Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var bílstjóranum gert ljóst að skýrsla yrði rituð um málið.