Nýjast á Local Suðurnes

Veita styrki til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun og velferðarráðuneytið auglýsa styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2016 lausa til umsóknar.

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

Verkefnið sé í eigu konu/kvenna (50%) og stjórnað af konu.
Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
Sérstök áhersla er lögð á, að styðja við þau verkefni sem eru á frumstigi þróunar og hafa ekki hlotið styrki. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er frá 18.janúar til og með 22.febrúar og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is

Nánari upplýsingar í síma 531-7080 eða á netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is