Nýjast á Local Suðurnes

Vegagerðin tekur yfir ábyrgð á almenningssamgöngum

Þjónusta Strætó á Suðurnesjum hefur verið tryggð út árið 2019. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur séð um rekstur almenningssamgangna á Suðurnesjum frá árinu 2015. Samningi samtakanna við Vegagerðina var hins vegar sagt upp í byrjun árs og því hefur nokkur óvissa legið yfir samgöngum á Suðurnesjum.

Samkomulagi hefur nú verið náð og mun Vegagerðin taka yfir ábyrgð á almenningssamgöngum á svæðinu í stað Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum. Þjónusta vagnanna verður óbreytt og munu þeir fylgja sömu tímatöflum og eru nú í gildi. Þetta fyrirkomulag mun gilda út árið 2019.

Í tilkynningu á vef Sambanda sveitarfélaga á Suðurnesjum kemur fram að sambandið muni ekki hafa milligöngu um nemakort og verður fólk að snúa sér beint til Strætó b.s.
Leiðirnar sem Strætó b.s. hefur umsjón með á Suðurnesjum eru:

Leið 55 milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur
Leið 87 milli Voga og Vogaafleggjara.
Leið 88 milli Grindavíkur og Reykjanesbæjar.
Leið 89 milli Sandgerðis, Garðs og Reykjanesbæjar.

Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Strætó, www.straeto.is