sudurnes.net
Veðurstofan varar við mikilli rigningu - Local Sudurnes
Veðurstofan hefur sent frá sér tilkynningu vegna mikillar rigningar sem spáð er um landið sunnan-og suðaustanvert eftir hádegi á morgun, þriðjudaginn 18. júlí og fram á miðvikudag 19. júlí. Spáin næstu daga: Suðvestlæg átt, 5-10 m/s og smáskúrir, en léttskýjað um landið austanvert. Vaxandi suðaustanátt með rigningu í fyrramálið, 10-23 m/s upp úr hádegi, hvassast við suðvesturströndina. Talsverð og sums staðar mikil rigning um tíma sunnanlands, en þurrt um landið norðaustanvert. Snýst í mun hægari suðlæga átt með skúrum fyrst suðvestantil annað kvöld. Hiti 10 til 18 stig í dag, hlýjast austanlands, en hiti að 20 stigum norðaustantil á morgun. Á miðvikudag: Suðaustan 13-18 m/s um landið suðaustanvert og rigning, en talsvert hægari og úrkomulítið norðan- og norðvestantil. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast norðanlands. Á fimmtudag: Austlæg átt 5-10 m/s og rigning með köflum suðaustanlands, en þurrt og bjart að mestu vestantil á landinu. Áfram fremur hlýtt í veðri. Á föstudag og laugardag: Norðaustlæg átt 5-10 m/s og léttir víða til. Hiti að 20 stigum í innsvetum um landið vestanvert, en skýjað og mun svalara við norðausturströndina. Meira frá SuðurnesjumSkúrir og þokumóða næstu daga – Hlýnar þegar líður á vikunaAlmannavarnir senda út viðvörun vegna óveðursTalsvert magn af úrkomu á [...]