Nýjast á Local Suðurnes

Védís Hervör ráðin til Viðskiptaráðs

Védís Hervör Árnadóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur í samskipta- og útgáfumálum hjá Viðskiptaráði Íslands. Védís mun jafnframt taka þátt í málefnastarfi ráðsins sem og annarri daglegri starfsemi. Hún hefur þegar hafið störf hjá Viðskiptaráði.

Védís hefur fjölbreytta reynslu af rekstri og stefnumótun í frumkvöðlageiranum. Hún er einn stofnenda KÍTÓN, félags kvenna í tónlist á Íslandi, og kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Freyja Filmwork. Þar áður starfaði Védís sem markaðs- og kynningarfulltrúi hjá Raddlist og Vinun, segir á vef Viðskiptaráðs.

Védís er með BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og alþjóðlega meistaragráðu í rekstri og stjórnun (MBA) frá Háskólanum í Reykjavík.