sudurnes.net
Vara við ofsaveðri - Vegagerðin varar sérstaklega við aðstæðum á Reykjanesbraut - Local Sudurnes
Veðurstofan varar við ofsaveðri í nótt og í fyrramálið. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að á Reykja­nesskaga megi bú­ast við að vind­hraðinn í fyrra­málið verði á bil­inu 23-28 m/​s, sem gæti mögu­lega leitt til trufl­ana á flugi. Vind­hraði í verstu hviðunum get­ur svo náð allt að 35-40 m/​s. Þá hefur Vegagerðin séð ástæðu til að vara sérstaklega við aðstæðum á Reykjanesbraut á milli kl. 09 og 11, þar sem vindur þvert á veginn verður 22-25 m/s með hviðum 35 m/s. Slagveðursrigning á sama tíma og vatn í hjólförum. Fólki er bent á að huga að lausa­mun­um þegar tvær óveðurs­lægðir fara yfir landið næsta sól­ar­hring­inn. All­mikið lægðardrag með roki og rign­ingu fer yfir Suður- og Vest­ur­land í nótt. Meira frá SuðurnesjumVegagerðin varar við aðstæðum á ReykjanesbrautÓveðrið fyrr á ferðinni – Reykjanesbraut enn á lista yfir fyrirhugaðar lokanirBálhvasst á brautinni – Gæti komið til lokunar með stuttum fyrirvaraVeðurhvellur gengur yfir landið – Reykjanesbraut líklega lokað og flugferðum flýttÁfram fremur milt veður en útlit fyrir rigningu eða súldSpá óveðri á miðvikudag – Reykjanesbrautin verður varasömVara við mikilli úrkomu – Fólk hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjónSpá miklu hvassviðri – Vara við akstri um ReykjanesbrautVeður gæti skapað bílastæðavandamálHaldið upp á [...]