Nýjast á Local Suðurnes

Væn grænmetisuppskera hjá leikskólabörnum

Krakkarnir á leikskólanum Króki í Grindavík, tóku sig til og settu í vor niður grænmeti í skólagarðana sem komið var á fót við Stakkavík. Sprettan í sumar var góð og á dögunum fóru krakkarnir og tóku upp grænmetið sitt. Þetta var mikið upplifelsi fyrir börnin eins og sjá má á meðfylgjandi myndunum, sem birtar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Krakkarnir fengu svo lánað kar hjá Stakkavík sem keyrði uppskeruna upp að dyrum. Það sem ekki var borðað bauðst börnunum að taka með sér heim og var það vel þegið. Tæmdist karið á 2 klukkustundum.

grindav krokur

 

grindav krokur2

 

grindav krokur3