sudurnes.net
Útilokað að samningar um skuldaniðurfellingu náist fyrir bæjarstjórnarfund - Local Sudurnes
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ segir að ekki sé enn ljóst hvort tillaga um fjárhaldsstjórn yfir sveitarfélaginu verði afgreidd eða henni frestað á fundi bæjarstjórnar á morgun. Málinu var frestað á síðustu stundu á síðasta fundi bæjarstjórnar, þegar kröfuhafar óskuðu eftir frekari viðræðum um skuldaniðurfellingu og hafa viðræður staðið síðan. Kjartan sagði í samtali við fréttastofu RÚV í morgun að viðræður héldu áfram en nú væri algjörlega útilokað að samningar næðust um skuldaniðurfellingu fyrir bæjarstjórnarfundinn á morgun. Þá væri tvennt í stöðunni, að fresta afgreiðslu tillögu um fjárhaldsstjórn og halda áfram viðræðum, eða slíta þeim og afgreiða tillöguna. Niðurstaðan færi eftir því hvernig fram vindur í viðræðunum í dag og á morgun. Meira frá SuðurnesjumÞórkatla færði Þorbirni milljón króna að gjöfElvar Már í eldlínunni í kvöld – Sjáðu leikinn í beinni!Bæjarstjóri um samninga við kröfuhafa: “Um fimmtungur skulda var ekki umsemjanlegur”Már og Ísold fá annað tækifæriÚtgáfa héraðsfréttablaðsins Reykjanes stöðvuðGlæsilegar stoðsendingar og körfur Elvars Más – Myndband!“Er klár í slaginn á ný” – Sverrir Þór tekur við KeflavíkGunnar Örlygsson hættir sem formaður Körfuknattleiksdeildar NjarðvíkurFyrrum Kadecoforstjóri kaupir álversbyggingu í HelguvíkGefa sódavatn og sælgæti í brettavís