Nýjast á Local Suðurnes

USi skuldar Reykjanesbæ 160 milljónir króna – Nýttu ekki afslætti í fjárfestingasamningi

Verksmiðja Stakksbergs í Helguvík

Ógreidd gatna­gerðar­- og fasteignagjöld United Silicon til Reykjanesbæjar nema 162 millj­ón­um króna, en heildargjöld fyrirtækisins til Reykjanesbæjar nema rúmlega 300 milljónum króna. Fyrirtækið nýtti sér ekki ákvæði í fjárfestingasamningi við ríkið um afsátt af umræddum gjöldum.

Aðspurður segir Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar, að fyrirtækið sé í skilum með greiðslur til Reykjanesbæjar, en samkomulag var gert á milli aðila fyrir stuttu síðan, sem hann vonast til að haldi. Fyrirtækið hefur greitt Reykjanesbæ tæplega helming skuldarinnar, eða um 140 milljónir króna, samkvæmt samkomulaginu.

“Það var gert greiðslusamkomulag fyrir stuttu síðan. Vonandi heldur það.” Sagði Guðbrandur.

Guðbrand­ur sagði í um­fjöll­un um mál þetta í  Morg­un­blaðinu í dag að upp­haf­lega kraf­an sé um það bil þriggja ára göm­ul og hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að kraf­an hafi ekki verið greidd á sín­um tíma vegna ágrein­ings milli Magnús­ar Garðars­son­ar, þáver­andi stjórn­ar­for­manns United Silicon, og Reykja­nes­bæj­ar um skyld­ur bæj­ar­fé­lags­ins gagn­vart verk­smiðjunni.