sudurnes.net
Uppsagnir hjá United Silicon vegna öryggismála - "Ekkert hefur breyst og ekkert verið lagað" - Local Sudurnes
Vefmiðillinn Stundin segir United Silicon hafa stundað það að undanförnu að losa hættuleg eiturefni í skjóli nætur út úr reykhreinsivirki verksmiðjunnar og út í andrúmsloftið. Þessu til staðfestingar birtir vefmiðillinn myndskeið sem sýnir að því er virðist umrædda losun. Í umfjöllun Stundarinnar kemur einnig fram að um sé að ræða ryk sem verður til við bruna á timbri en timbrið er notað til þess að hita upp fyrsta ofninn af fjórum sem United Silicon hyggst gangsetja á næstu árum. Umrætt myndskeið má sjá hér, en miðillinn greinir einnig frá því að fleiri slík verði birt á næstu dögum. Segja upp störfum af öryggisástæðum Þá hefur blaðamaður Stundarinnar, eftir ónafngreindum starfsmanni að menn hafi sagt upp störfum í verksmiðjunni vegna öryggsmála, en sá setur meðal annars út á sjúkraherbergi starfsmanna. “Það [sjúkraherbergi starfsmanna] er að mestu óklárað, grútskítugt og engin áhöld, plástrar eða annað sem þyrfti að nota ef alvarlegt slys yrði á staðnum. „Það færi enginn þarna inn með opið sár til dæmis. Þetta er eins og herbergi á sjúkrahúsi á stríðssvæði sem hefur orðið fyrir sprengjuárás og er náttúrulega ekki nokkrum manni bjóðandi,“ „Menn eru að segja upp störfum einfaldlega af öryggisástæðum. Það situr í mér hversu máttlausar eftirlitsstofnanirnar eru. [...]