Uppsagnir hjá Airport Associates – Stærsta hópuppsögn síðan varnarliðið fór
Flugþjónustufyrirtækið Airport Associates á Keflavíkurflugvelli hefur sagt upp 237 af um 500 starfsmönnum sínum. Fyrirtæki er stærsti þjónustuaðili WOW air.
Flestir starfsmannanna eru í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis en einnig í Verslunarmannafélagi Suðurnesja, að því er segir í frétt mbl.is. Þá er haft eftir Kristjáni Gunnarssyni, formanni VSFK að um sé að ræða stærstu hópuppsögn á Suðurnesjum síðan bandaríska varnarliðið fór fyrir rúmum áratug.