Nýjast á Local Suðurnes

Unnar Steinn hættur sem verjandi Sævars Ciesielski

Hæstaréttarlögmaðurinn Unnar Steinn Bjarndal hefur hætt störfum sem verjandi Sævars Ciesielski við endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Unnar Steinn hættir störfum að beiðni fjölskyldu Sævars, en hann var skipaður af hæstarétti í september síðastliðnum.

Oddgeir Einarsson hefur tekið við málinu af Unnari Steini, samkvæmt frétt Vísis.is.

„Að Unnari Steini ólöstuðum óskaði ég ekki eftir honum sem verjanda fyrir mína hönd en hann var engu að síður skipaður af Hæstarétti að ósk systkina minna. Í síðustu viku varð sátt um að Oddgeir tæki málið að sér fyrir hönd okkar allra,“ segir Júlía Marínósdóttir, dóttir Sævars við Vísi.is.