sudurnes.net
United Silicon fær framlengingu á greiðslustöðvun - Local Sudurnes
Héraðsdómur Reykjaness féllst í dag á beiðni United Silicon um áframhaldandi greiðslustöðvun til 22. janúar. Engin starfsemi hefur átt sér stað í verksmiðjunni frá 1. september síðastliðnum, utan þess að unnið hefur verið að endurbótum á verksmiðjunni. Karen Kjartansdóttir, talsmaður United Silicon sagði við Vísi.is að fjárfestar hafi sýnt verksmiðjunni áhuga. „Nú þegar þá hafa stórir alþjóðlegir aðilar lýst yfir áhuga á verksmiðjunni. Verðið á kísilmálmi hefur hækkað mikið að undanförnu þannig að vissulega gætu góð tækifæri falist í þessari verksmiðju,“ segir Karen við Vísi. Meira frá SuðurnesjumReynsluboltar til United Silicon – Unnið að því að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðarFá frest til að skila inn athugasemdum til UmhverfisstofnunnarFreista þess að fá á annan milljarð króna greiddan vegna kísilmálmverksmiðjuKísilver í gjörgæslu bankastofnana – Reynsluboltar taka sæti í stjórn USi í HelguvíkUnited Silicon gjaldþrotaMistök í mælingum við verksmiðju United SiliconÍbúar hefðu átt að láta í sér heyra fyrr – Yfir 60% voru hlynntir uppbyggingu í Helguvík“Mikilvægt að fyrirtæki sem hafa áhrif á umhverfið vakti það vel”Kísilver í fjárhagskrísu – Magnús yfirgefur stjórn USi og óvissa um fjármögnun ThorsilBæjarráð Reykjanesbæjar vill fund með Umhverfisstofnun vegna United Silicon