Nýjast á Local Suðurnes

Ungmenni játuðu íkveikju, innbrot og skemmdarverk í Sandgerði

Lögreglan á Suðurnesjum handtók fimm ungmenni í lok síðustu viku  sem hafa orðið uppvís að því  að hafa verið völd að íkveikju, innbrotum og öðrum spellvirkjum í umdæminu nýverið.  Ýmist voru tveir eða þrír úr hópnum við verknaðina. Einstaklingar úr hópnum, sem er á aldrinum 17 – 20 ára, hafa játað að hafa farið inn í geymsluhúsnæði í eigu Sandgerðisbæjar aðfaranótt sunnudagsins 8. maí og kveikt í því. Munir, tæki og húsið sjálft gjöreyðilögðust í eldinum.

Þá brutust ungmennin inn í húsnæði Nesfisks og unnu þar miklar skemmdir. Húsgögn, hillur og eldhústæki höfðu verið brotin og og tölva og loftpressa, sem heldur vinnslunni gangandi, skemmdar. Einnig hafði olíu verið hellt yfir gaskúta í húsnæðinu. Loks var brotist inn í gróðrarstöð í Sandgerði og einnig áhaldahús Sandgerðisbæjar og skemmdir unnar á báðum stöðum.

Sum ungmennanna voru innan 18 ára aldurs og voru foreldrar þeirra viðstaddir skýrslutökur lögreglu. Þá verður athæfi þeirra tilkynnt barnaverndarnefnd.