Nýjast á Local Suðurnes

Ungir drengir stungu sig á blóðugum sprautunálum

Sex litlir drengir voru á sunnudag fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að þeir höfðu stungið sig á blóðugum sprautunálum. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um málið og reyndust drengirnir hafa fundið sprautur með nálum á í húsnæði í umdæminu sem hefur verið lengi í byggingu. Birgt hafði verið fyrir glugga og dyraop húsnæðisins en búið var að brjóta þann umbúnað frá. Þar höfðu drengirnir komist inn, fundið sprauturnar og farið að skylmast með þeim.  Sprautunum var eytt á HSS.

Lögregla tilkynnir atvik af þessu tagi til barnaverndaryfirvalda auk þess sem haft er samband við húseiganda með ábendingu um úrbætur á húsnæðinu.