sudurnes.net
Undri lauk endurvottun - Fyrirtækið verið einna lengst í Svansfjölskyldunni - Local Sudurnes
Suðurnesjafyrirtækið Undri lauk nýverið endurvottun Svansins fyrir penslasápu og iðnaðarhreinsi sem framleiddur er í húsakynnum fyrirtækisins í Reykjanesbæ. Undri er eitt þeirra fyrirtækja sem hefur verið lengst í Svansfjölskyldunni, en fyrirtækið fékk fyrst vottun árið 2006. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunnar, en þar er tekið fram að Svanurinn endurskoði reglulega viðmið sín með það að markmiði að þau endurspegli þróunin á markaðnum og aðeins vörur sem hafa lágmarks umhverfisáhrif geti hlotið vottun. Í hvert skipti sem endurvottun fer fram er því verið að herða þær kröfur sem Svansvottaðar vörur þurfa að uppfylla. Þegar kemur að framleiðslulínu Undra snýst Svansvottunin aðallega um það að lágmarka notkun skaðlegra efna og lágmarka þar af leiðandi áhrif vörunnar á umhverfið. Undri var stofnað af Sigurði Hólm Sigurðssyni og sá hann um rekstur þess þangað til á síðasta ári þegar fyrirtækið skipti um eigendur. Á myndinni tekur Helgi B. Þórisson, annar nýju eigendanna við endurnýjuðu Svansleyfi frá Birgittu Stefánsdóttur, starfsmanni Svansins. Meira frá Suðurnesjum14 flug­fé­lög í vetr­aráætl­un Leifs­stöðvar – Flogið til 57 áfangastaðaGeir­mund­ur fær 18 mánaða dómReykjanesbær lítur vel út – Hverfakeppni eykur afköst og gerir vinnuna skemmtilegriDrengur féll í gegnum ís á tjörninni í Innri NjarðvíkMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLögregla leysti [...]