sudurnes.net
Undirskriftasöfnun gegn borunum í Eldvörpum - Local Sudurnes
Hafin er alþjóðleg undirskrifasöfnun á vefsvæði Avaaz þar sem skorað er á HS Orku og Grindavíkurbæ að hætta við áform um rannsóknarboranir og jarðhitavinnslu í Eldvörpum á Reykjanesi, þetta kemur fram í grein sem náttúruljósmyndarinn Ellert Grétason skrifar á vefmiðlinum Stundinni. “Reykjanes Geopark var stofnaður af Grindavíkurbæ og HS Orku. Er jarðvanginum ætlað að hafa „fræðslugildi vegna fjölbreytilegrar náttúru og sjaldgæfra jarðminja“ svo vitnað sé beint í talsmann jarðvangsins. Bæjarstjórinn í Grindavík talar einnig í nýlegu viðtali um „uppbyggingu ferðaþjónustu og fræðslu sem byggir á einstökum jarðminjum“. Á sama tíma gaf Grindavíkurbær HS Orku grænt ljós til að hefja rannsóknarboranir ofan í merkilegustu jarðminjum svæðisins þar sem gígaröðin í Eldvörpum verður „skreytt“ með fimm risastórum borteigum.” Segir í grein Ellerts. Ellert bendir svo einnig á að hægt sé að taka þátt í undirskriftasöfnuninn hér. Meira frá SuðurnesjumÓkeypis jazztónleikar í SuðurnesjabæAuðlindagarður HS Orku hlaut umhverfisverðlaunMargreyndur veiðimaður skaut af haglabyssu í íbúabyggðBæjaryfirvöld gerðu Helguvíkursöfnun erfitt fyrir með vali á tímasetninguKortleggur herruslahauga á Suðurnesjum – Jörðuðu asbest á StafnesiFesta mun leitast við að koma til móts við sjóðfélagaBreytingar á kísilverksmiðju leiði til betri dreifingar útblástursefnaUndirrituðu viljayfirlýsingu um kaup á kísilveriAirport Associates verður hluthafi í WOW-airÍbúar í Höfnum og á Ásbrú verða án rafmagns í klukkustund