sudurnes.net
Undirbúa sig vegna hugsanlegrar náttúruvár - Local Sudurnes
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að fela bæjarstjóra að kanna kostnað við uppsetningu færanlegrar varaaflsstöðvar í sveitarfélaginu, ásamt því að koma upp viðeigandi tengingum á byggingu Stóru-Vogaskóla, en skólabyggingin er skilgreind sem fjöldahjálparstöð í Vogum. Þá var á síðasta fundi ráðsins ítrekuð bókun bæjarstjórnar um mikilvægi þess að unnin verði rýmingaráætlun fyrir sveitarfélagið, og felur bæjarstjóra að koma því á framfæri við Almannavarnarnefnd. Bæjarstjórinn, Ásgeir Eiríksson, gerði málunum einnig góð skil í pistli sem birtur er á heimasíðu sveitarfélagsins en þar greinir hann frá því að mesta hættan sem steðjar að Vogum beinist að því hvort innviðir verði fyrir skakkaföllum, þ.e. rafmagnframleiðsla og rafmagnsdreifing; dreifing heita og kalda vatnsins og fjarskipti. Hann segir Viðbragðsáætlanir sveitarfélagsins því einkum þurfa að beinast að með hvaða hætti tekist yrði á við slíka röskun Meira frá SuðurnesjumÁ þriðja tug stúlkna hefur kært áreitni á Facebook – Flestar búsettar í ReykjanesbæMeiddist á flótta undan hundiGera athugasemdir við tillögur að nafni á sameinað sveitarfélag – “Kann að valda flækjustigi”Silja Dögg: “Nákvæmlega sama um hvað annað fólk er með í laun”Vill að stofnaður verði afrekssjóður fyrir framúrskarandi ungt íþróttafólkFáir nota endurskinsmerkiTöluvert um umferðaróhöpp – Gaf sig fram eftir að hafa ekið á tvær bifreiðar á ÁsbrúHaukur Helgi rær á önnur miðRitsmiðja með [...]