sudurnes.net
Undir áhrifum með hvarfakúta og bílvél inni í bílnum - Local Sudurnes
Nokkr­ir hvarfa­kút­ar og hluti úr bíl­vél fund­ust í bif­reið sem lög­regl­an á Suður­nesj­um stöðvaði við hefðbundið eft­ir­lit á Reykja­nes­braut í vik­unni. Talið er að um þýfi sé að ræða. Ökumaður­inn var grunaður um fíkni­efna­akst­ur og voru sýna­tök­ur á lög­reglu­stöð já­kvæðar á am­feta­mínn­eyslu. Þá var hann með hníf í fór­um sín­um sem var hald­lagður. Fá­ein­ir öku­menn til viðbót­ar voru tekn­ir úr um­ferð vegna gruns um fíkni­efna­akst­ur. Þá var lög­reglu til­kynnt um að brot­ist hefði verið inn í bif­reið og þaðan stolið ýms­um mun­um. Var meðal annars um að ræða mott­ur, vara­dekk og þokuljós. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnStefna á öll 18 mánaða börn fái leikskólapláss – Stækka þá leikskóla sem þarfFá fimm mínútur til að sækja nauðsynjar – Svona fer aðgerðin fram!Stálu talsverðu magni af hinum ýmsu lyfjumHúllið nýtt nafn á viðburðartorgiInnbrotsþjófar staðnir að verkiReykjanesbær mótar stefnu um notkun samfélagsmiðlaErfðagripum stolið – Biður fólk að hafa samband við lögreglu séu slíkir munir boðnir til söluGrindvíkingum ekki hleypt inn í bæinn um helginaGrindavíkurbær gerir samstarfssamning við NES