Nýjast á Local Suðurnes

Undir áhrifum fíkniefna á 192 kílómetra hraða

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært allmarga ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 192 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumaðurinn sem jafnframt er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna var handtekinn og sviptur ökuréttindum. Hans bíður ákæra.

Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Einn þeirra var handtekinn tvo daga í röð vegna þessa og annar reyndist jafnframt vera með fíkniefni í fórum sínum.

Enn fremur hafði lögregla afskipti af fáeinum sem óku sviptir ökuréttindum.