sudurnes.net
Umsækjendum um nám í Háskólabrú Keilis fjölgar mikið - Bjóða upp á nám á ensku - Local Sudurnes
Aldrei hafa borist jafn margar umsóknir um nám í Háskólabrú Keilis á haustönn og fjölgar þeim mikið milli ára. Mun árgangurinn sem hefur nám á haustönn 2017 því verða með þeim fjölmennustu frá upphafi. Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Þá mun Keilir bjóða upp á Háskólabrú á ensku frá og með haustinu. Námið er hugsað fyrir einstaklinga með annað móðurmál en íslensku sem hyggja á nám í Háskóla Íslands en hafa ekki lokið stúdentsprófi. Námið hefst í október og er umsóknarfrestur til 11. september næstkomandi. 113 nemendur útskrifast af Háskólabrú Keilis á árinu Keilir útskrifaði ellefu nemendur af Verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar við hátíðlega athöfn á Ásbrú föstudaginn 18. ágúst. Með útskriftinni hefur Háskólabrú Keilis útskrifað alls 113 nemendur á þessu ári og samtals 1.534 nemendur á þeim tíu árum sem boðið hefur verið upp á námið. Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis, flutti hátíðarræðu og Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Í ræðu sinni lagði Hjálmar áherslu á gagnkvæma virðingu [...]