Nýjast á Local Suðurnes

Umhverfis- og samgöngunefnd heldur opinn fund um málefni United Silicon

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Umhverfis- og samgöngunefnd heldur opinn fund miðvikudaginn 5. apríl kl. 9.30 um málefni verksmiðju United Silicon í Helguvík.

Gestir á fundinum verða: Björt Ólafsdóttir, Umhverfis- og auðlindaráðherra, Helgi Þórhallsson forstjóri, Kristleifur Andrésson og Þórður Magnússon, frá United Silicon. Þá munu fulltrúar frá Íbúasamtökum á Reykjanesi, bæjarráði Reykjanesbæjar og Umhverfisstofnun sitja fundinn.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.